Gel hnéhlífar

Fylgihlutir

Gel hnéhlífar

4.990 kr.

Lítið eftir á lager

Fæst hjá Flísabúðinni, Stórhöfða 21, 110 Reykjavík

Um vöruna

Gel hnéhlífar frá RUBI

RUBI GEL DUPLEX hnéhlífarnar eru bæði þægilegar og vel hannaðar. Þær sameina harða ytri vörn gegn höggum og ójöfnu undirlagi og mjúkt innra lag sem aðlagast líkamanum. Sílikon-gel veitir góða vernd og stöðugleika og dregur úr álagi á sinar og liðbönd.

Hnéhlífarnar henta mörgum fagstéttum í byggingariðnaði. Ytri gúmmívörnina má fjarlægja eftir þörfum, sem gerir þær léttari og auðveldar hreyfingu á sléttum flötum.

Þær eru með tvöföldu festikerfi sem tryggir góða og þægilega aðlögun að fæti.